Hert og samlímt öryggisgler

Hert gler og hert samlímt öryggisgler

 

ProRailing býður hert gler í glerveggi, svalaskjól ofl og hert samlímdt öryggisgleri í handrið og svalaganga.

Hert gler er flotgler sem hitað er í 600 gráður og kælt í mjög sérhæfðum vélum og við það eykst styrkur þess svo að það verður um 5-6 sinnum sterkara en venjulegt gler.

Einfalt hert gler  (ESG) er notað td. í glerhurðir, milliveggi og í rúður sem þurfa að standast mikið vindálag þmt. svalalokanir.  Brotni hert gler fer það í þúsundir mola sem dregur verulega úr slysahættu.

Tvöfalt hert og samlímt gler (TVG) er oft kallað hert öryggisgler og samanstendur af 2 hertum glerplötur sem límdar eru saman með fólíu.
Þessi gerð er notuð td. í glerhandrið og þar sem er fallhætta eða hætta á að gler geti valdi skaða á almenningi td. í verslunarhúsnæði.
Samkvæmt stöðlum og nýjustu byggingareglugerð er krafa um að glerin sé samlímt þannig að glerbrotin hangi í filmunni á milli glerjanna, brotni glerið og valdi þannig ekki slysum né skaða á fólki vegna fallhættu.

Vinnsluaðferð

Öll vinnsla eins og skurður, borun, slípun og CNC vinnsla á gleri fer fram áður en herslan er framkvæmd. Glerið er hert í tölvustýrðum hersluofnum frá Glaston af nýjustu gerð. Stærsta mögulega rúðustærðin sem hægt er að herða er 2400 x 4800mm. Hagkvæmast er þó að deila rúðum í minni stærðir undir 2000mm (2m) sökum aukakostnaðar bæði í framleiðslu og flutningi, verði rúðurnar mjög stórar.
Venjuleg breidd á glerplötum i handrið er á milli 1000 – 1600mm en hægt er að bjóða breiðari gler þó það auki kostnað.   Eftir vinnslu og herslu er glerið samlímt með fólíu,

Við bjóðum þrjá megingerðir fólíu í öryggisgler eftir þeim eiginleikum og kröfum sem gerðar eru en algengust er hefðbundin PVB fólia (PolyVinylButyral). Þessi tegun sú algengasta og er mest notuð í öryggisgler.
Einnig bjóðum við EVA (EthyleneVinylAcetate) Þessi tegund fólíu, EVA er tiltölulega ný af nálinni og verður sífellt vinsælli vegna mekanískra eiginleika fólíunnar.   EVA fólía hefur mun betri viðloðun og  meiri mótstöðueiginleika varðandi rakadrægni (high moisture resistance) en venjuleg PVB.
Einnig getum við boðið öryggsigler með SGP fóliu (SentryGlas®ionoplast) sem er sérstaklega stíf og öflug fólía notuð þar sem miklar kröfur eru gerða til eiginleika fólíunnar.

Allt gler frá okkur er CE merkt og framleitt samkvæmt reglugerð og samræmdum evrópskum stöðlum  EN 12150-2:2004  (Gler í byggingar – Hitahert öryggisgler úr natríumkalksilíkati)  EN 14449:2005

Ýmsar útfærslur og litir eru í boði á hertu gleri td. glært, extra glært, brons litað, grátt eða matt bæði fyrir handrið innanhúss sem og utanhúss. Margar gerði af fólíu má fá í mismunandi litum gulur, rauður grænn og blár svo fátt sé nefnt.

Hafðu samband við ráðgjafa okkar og fáðu verðtilboð

Hannaðu glerhandrið og fáðu verð strax