Glerveggir og hurðar
Glerveggir – rennihurðar
Færanlegir glerveggir gefa möguleika á að búa til rými td. undir svölum eða á trépöllum, eða sem lokun á smáhýsum td. pergólum. Glerveggir bæta aukarými við eignina sem þú munt njóta um ókomin ár td. fyrir líkamræktartæki, sötra morgunkaffið eða að horfa á norðurljósin.
Að auki verður notalegra að sitja útivið þar sem sem sólin hitar upp rýmið og alltaf er logn. Glerin er er svo hægt að opna og njóta þannig sólar og veðurblíðu á góðum dögum sé þess óskað.
Við bjóðum nokkrar gerðir og seljum glerlokanir og svalalokanir frá finnskum framleiðendum ásamt því að framleiða okkar eigin gerðir í verksmiðju okkar í Danmkörku allt eftir stærð og eðli verkefnisins hverju sinni.
Allir glerveggir frá okkur eru með CE merktu hertu gleri og er þykktin frá 8 – 12 mm, jafnvel er möguleiki á einangrunargleri
Minna viðhald
Glerveggirnir okkar veita skjól fyrir vindi, regni og snjó og verndar því pallinn og minnka þannig kostnað og við viðhald. Þú munt ekki sjá eftir þeirri ákvörðun að loka rýminu með gleri því þú færð auka fermetra við eignina sem þú munt njóta um ókomin ár td. fyrir líkamræktartæki, sötra morgunkaffið eða að horfa á norðurljósin.
Umhverfisvænt
Veggir og svalalokanir frá okkur er 100% endurvinnanlegar og framleiddar úr ál og gleri. Því er lítið viðhald og endurvinnanleikin alger. Efnið, bæði ál og gler er hægt að endurvinna.
Lækkaðu hitakostnað
Rannsóknir hafa sýnt að glerlokanir minnka hitatap í rými inn af glerlokuðum rýmum um 10,7% . Það er vegna þess að rýmið á svölunum þegar þeim er lokað og loftið er kyrrt virkar eins og einangrun og jafnvel smá sólarglæta yfir vetrarmánuðina getur hjálpað að hita loftið á svölunum.
Hafðu samband óskirðu efftir nánari upplýsingum..