Öryggisgler

No products were found matching your selection.

Bjóðum sérunnið gler í stærri framkvæmdir þmt. handrið, glerveggi, svalaskjól og svalaganga.

Hert gler er flotgler sem hitað er í 600 gráður og kælt í mjög sérhæfðum vélum og við það eykst styrkur þess svo að það verður um 5-6 sinnum sterkara en venjulegt gler.

Einfalt hert gler  (ESG) er notað td. í glerhurðir, milliveggi og í rúður sem þurfa að standast mikið vindálag þmt. svalalokanir.  Brotni hert gler fer það í þúsundir mola sem dregur verulega úr slysahættu.

Samlímt gler (VSG)  og samlímt hert gler (TSG) er oft kallað hert öryggisgler og samanstendur af 2 eða fleiri glerplötum sem límdar eru saman með fólíu. Þessar gerðir geta haft mismunandi uppbyggingu  og notað er bæði venjulegt flotgler eða hert gler allt eftir þeim eigingleikum sem glerið á að hafa. Einnig er blandað saman gleri með mismunandi eiginleikum og lög geta verið mörg. Fólíur á milli glerja hafa einnig mismunandi eigingleika.
Þessi gerð er notuð td. í glerhandrið, glerveggi og þar sem er fallhætta eða hætta á að gler geti valdi skaða á almenningi td. í verslunarhúsnæði.

Allt gler frá okkur er CE merkt og framleitt samkvæmt reglugerð og samræmdum evrópskum stöðlum  EN 12150-2:2004  (Gler í byggingar – Hitahert öryggisgler úr natríumkalksilíkati)  EN 14449:2005

ATH:  Ekki er mögulegt að panta eitt stakt gler sökum flutningskostnaðar.

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tóm!Til baka