Slimline toppfest

Upplýsingar um verk

Viðskiptavinur

Þingvangur 

Dags

2024
m

Vöruflokkur

Slimline

Staður

Hveragerði

Slimline – toppfest glerhandrið

Fengum fyrirspurn í nóvember 2023 frá Þingvang varðandi glerhandrið fyrir verkefni sem þeir höfðu í byggingu við Varmá í Hveragerði.  Í samráði við Þingvangsmenn og arkitekt var ákveðið að nota Slimline toppfest glerhandrið með handlista á svalaganga og göngubrýr og á svalir íbúðanna var notað glerhandrið með póstum burðarþolsreiknað til að þola mikið álag ef þess yrði óskað seinna að kaupa svalalokun ofaná handriðin.

Í Janúarlok kom fullpakkaður 40feta gámur á byggingarstað  með uþb 9 tonnum af gleri ásamt tilheyrandi álkerfum og var strax hafist handa að setja upp. Uppsetning gekk vonum framar og var útfærð í samráði við við Þingvangsmenn þannig að síðasta glerið var sett upp í Apríl samkvæmt framkvæmdaáætlun.

Í þessu verkefni er tvöfalt hert öryggisgler samlímt með EVA fólíu glært. Þessi EVA fólía (EthyleneVinylAcetate) EVA er tiltölulega nýleg af nálinni og verður sífellt vinsælli vegna mekanískra eiginleika fólíunnar.  EVA fólía hefur mun betri viðloðun og  meiri mótstöðueiginleika varðandi rakadrægni (high moisture resistance) en venjuleg PVB fólía.

Slimline KE 100 prófíllinn var festur ofan á  steypukantinn með sjálfskerandi steypuskrúfum. Glerin eru fest í prófílinn með Glassmove kerfinu sem gefur möguleika á að stilla glerin um 2° í prófílnum til að ná glerinu í rétt lóð.  Í hlið glerjanna er festur handlisti í 90cm hæð með lýsingu sem lýsir niður svalaganginn.  Allir sýnilegir álprófílar pólýhúðaðri í svörtu.
PrioRailing sá um uppsetningu á staðnum og gekk allt eins og best verður á kosið þrátt fyrir nokkuð napurt veður á köflum  – útkoman er vægast sagt frábær 🙌

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tóm!Til baka