Slimline Fixpoint Vík
Um verkið
Viðskiptavinur
Fasteignafélagið Skuld
Dags.
2024
Vöruflokkur
Slimline Fixpoint glerhandrið
Staður
Vík í Mýrdal
Slimline glerhandrið Vík
Slimline Fixpoint með dökku gleri
Fixpoint glerhandrið með dökku gleri á svalir og tröppur.
Framleitt eftir teikningum viðskiptavinar og afhent í Vík ca 5 vikum frá staðfestingu.
Í þessu verkefni er notað svokallað grey parsol gler þeas. tvöfalt dökk gegnilitað hert öryggisgler samlímt með EVA fólíu. Þessi EVA fólía (EthyleneVinylAcetate) EVA er tiltölulega nýleg af nálinni og verður sífellt vinsælli vegna mekanískra eiginleika fólíunnar. EVA fólía hefur mun betri viðloðun og meiri mótstöðueiginleika varðandi rakadrægni (high moisture resistance) en venjuleg PVB fólía. Því hentaði þessi tegund vel á stað eins og Vík sem er við sjó.
Glerfestingar eru ryðfríar AISI316 punktfestingar festar með límboltum. Ofan á glering er settu lítil U topplisti sem ver gegn hnjaski og samkvæmt reglugerð er handlisti/grip á tröppuhandriðum. Handlistinn er úr rafpóleruðu áli í sama útliti og festingar. Uppsetning á staðnum var á útfærð af kaupanda.