Sólskálar

Sælureiturinn í húsinu vetur, sumar, vor og haust

Glerskálar

Með glerskála býrðu til sannkallaðan sælureit í húsinu sem þú getur notið allan ársins hring.

Prorailing.is  býður frábæra glerskála  sem hannaðir eru með nýjustu tækni og í bestu gæðum.
Yfirbyggingin er úr öflugum álprófilum með innbyggðu þakrennukerfi og bæði hægt að fá óeinagraða skála  eða full einangraða skála með þreföldu einangrunargleri. 

Glerskálar og smáhýsi eru alltaf framleidd eftir máli, lit og óskum hvers viðskiptavinars og eru hægt að fá allskonar aukabúnað í skálann td.  LED lýsingu, sólgardínur,  geislahitara og bluetooth hátalara svo eitthvað sé nefnt.  Þú getur aðlagað flestar gerðir að húsinu eða haft glerhýsið frítt standandandi í garðinum allt eftir óskum. 

agava160

WG100 easy

Sterkt álprófílakerfi fyrir óeinagraðar glerbyggingar

WG 100 Z

Öflugri gerð með hátt einangrunargildi

ASP 50-75

Einangrunargluggar og hurðaeiningar.

Allir sólskálar eru hannaðir, 3D teiknaðir og burðarþolsreiknaðir fyrir hvert verkefni

Sólskáli

Verkferlið

Eftir að tilboð er samþykkt fer sjálft verkferlið af stað.
Hver og einn skáli er hannaður og framleiddur eftir máli og þannig er yfirbyggingin sérsniðið að óskum og aðstæðum hverju sinni. 
Glerskálar geta verið flóknir td. eru yfirleitt lokaðar hliðar með td. með glerveggjum,  gluggum, rennihurðum  osfr,  þannig að það er ýmisleg sem þarf að athuga áður en farið er af stað. PS skálarnir fást bæði einangraðir með tvöföldu eða þreföldu gleri og óeinangraðir, því er einangrunargildi og snjóálag nokkuð sem þarf að huga að í hönnunarferlinu.
Eftir að viðskiptavinur hefur samþykkt verðtilboð mætum við á staðinn til skoðunar og  uppmælinga.  Eftir það eru gerðar fullkomnar  vinnu og framleiðslteikningar og síðan er pöntunin yfirfarin með kaupanda áður en skálinn fer í framleiðslu í verksmiðju Profilshop í Árósum. Mögulega er hægt að notast við arkitektateikningar og teikna skálann útfrá þeim,  séu þær áræðanlegar. Reikna má með einhverjum smábreytingum og aðlögun eftir uppmælingu og í loka hönnunarferlinu.  Þegar að allt liggur fyrir og viðskiptavinur staðfestir endanlega pöntunina  líða umþb. 12-14 vikur þangað til að skálinn er kominn á bygginarstað og þá hefst uppsetning.