Glerveggir
Glerveggir
Glerveggir hafa notið mikilla vinsælda þegar kemur að því að innrétta skrifstofu og atvinnuhúsnæði þar sem betri hljóðvist, náttúrulegt birtuflæði og opið rými eru kostir sem eykur vellíðan starfsfólksins.
Við framleiðum eigin útfærslu einfaldra glerveggja undir nafninu Decibel sem eru einfaldir veggir með allt að 38 dB hljóðdempun.
Einnig bjóðum við mjög vandað glerveggjakerfi frá pólska framleiðandum Espes framleidda eftir máli.
![]()
Glerveggir frá Espes fást sem bæði einfaldir og tvöfaldir veggir með hljóðdempun í allt að 56dB.
Allir veggir frá Espes eru sérframleiddir fyrir hvert verkefni og því boðið uppá fjölbreitt efnisval þmt. viðarhurðir, viðarkarma, sprota og alla Ral liti. Að auki eru í boði ýmisskonar lausnir varðandi læsingabúnað bæði kerfis og snjalllása ásamt næðislausnum. Espes býður mismunandi prófílakerfi, Espes 30 – 80 – 100 og Espes 125 allt eftir hve miklar kröfur eru gerða til veggjana frá 38dB dempun upp í tvöfalda glerveggi með 60dB hjóðdempun.
Að auki framleiðir Espes eldtefjandi glerveggi sem standast kröfur frá EI15 til EI120.
Því henta Espes glerveggir vel hvort sem leitað er einfaldra veggjalausna eða lausna í sérverkefnið þar sem innrétta á atvinnu og verksmiðjuhúsnæði eða þar sem gerða eru miklar kröfur um vinnuumhverfið ss. birtu, hljóðvist, öryggi og sérbúnað.
Helstu kostir Espes glerveggja
- Mikill möguleiki á sérhönnun
- Hljóðdempun allt að 60 dB!
- Rafdrifnar hurðar og aðgangstýringar – snjalllausnir
- Úrval sérlausna þmt. bogið gler, viðareiningar og litir.
- Sterkbyggðir veggir hæð allt að 6 metra!
- Úthugsuð hönnun fyrir vinnustaðinn
- PRIVA-LITE® fjarstýrð snjallfólía fyrir næði
- 100% endurvinnanlegt
Nánari upplýsingar um glerveggjalausnir og verð veitir Magnús á tölvupósti eða síma 8359100.
Auk veggja frá Espes bjóðum við hagkvæma DECIBEL glerveggi eftir máli sem við framleiðum í eigin verksmiðju eftir máli.
DECIBEL veggjakerfið samanstendur af einföldum rammaprófílum, læsingum og glerfestingum. Auk 3 staðlaðra hurðasetta M8, M9 og M10 er hægt fá hurðar í sérmáli í veggina. Álprófílar innan í vegginn afrgreiðast í heilum 3m lengdum til að möguleiki sé að fella 100% að vegg á staðnum.
Markmiðið með DECIBEL kerfinu eru hagkvæmar lausnir með styttri afgreiðslufrest sem henta flestum aðstæðum. Allir Decibel glerveggir eru framleiddir eftir máli í okkar eigin verksmiðju í Árósum.
Helstu kostir DECIBEL glerveggja
- Hagkvæm lausn – staðlaðar hurðaeiningar og auðveldir í uppsetingu
- Hljóðdempun allt að 38 dB – 12.76mm hert hljóðvarnargler
- Sterkbyggðir veggir – 100% endurvinnanlegt
- Nútímaleg hönnun með möguleika á sprotum – New York look
- Styttri afgreiðslufrestur
Allir glerveggir frá okkur eru með CE merktu gleri og er þykktin frá 8 – 12,76mm hert, hert samlímt eða samlímt hljóðdempandi, sé meiri hljóðdempunar óskað. Allir veggir eru sérframleiddir eftir máli og óskum viðskiptavinar hverju sinni. Alla glerveggi er hægt að fá merkta og skreytta að eigin óskum td. med silkiprentuðu gleri eða með álímdum filmum frá samstarfsaðila okkar Filmulist.is.
Hönnun
Hægt er að útfæra veggina að óskum td. einfalda glerveggi, mikið hljóðdempandi og með sprotum, svokallaðir “New Yorker” veggir.
Prófílar og festingabúnaður fæst elokseraður og í RAL 9005 svart sem lagervara eða möguleiki að fá húðað í RAL litum.
Við tilboð/pöntun er teiknuð 3D vinnuteikning sem sýnir hönnun og málsetningar og eftir staðfestingu fer pöntunin í framleiðslu. Teikningar fylgja hverju verkefni ásamt uppsetnignarleiðbeiningum til að tryggja að allt sé rétt, passi og uppsetning sé enföld og gangi fumlaust fyrir sig. Engin sérverkfæri þarf í uppsetningu, einngis er gott að hafa létta sög, borvél, skrúvél og handverkfæri. Þannig eru glerveggirnir frá okkur mjög hentugir þeim sem vilja setja upp sjálfir (DIY).
Umhverfisvænt
Allir veggir er 100% endurvinnanlegir framleiddir úr áli og gleri. Því er lítið viðhald og bæði ál og gler er hægt að endurvinna.
Beint frá eigin verksmiðju
Við framleiðum DECIBEL veggjakerfið í eigin verksmiðju í Árósum þannig að öll hönnun og framleiðsla er innanhúss hjá sama okkur. Allir listar, festingar og þéttiborðar sem þarf til að setja saman veggina er innfalið í tilboðsverði. Tilboðsverð er alltaf efnisverð án uppsetningar. Við getum bent á uppsetningaraðila sé þess óskað. Nánari upplýsingar um glerveggjalausnir veitir Magnús í tölvupósti eða síma 8359100.