Glerhandrið
Slimline – glerhandrið
Stílhrein glerhandrið án stólpa fyrir svalir, svalaganga, stiga og palla.
Óhindrað útsýni, nútímaleg hönnun og öryggi einkennir Slimline handriða kerfin okkar.
Slimline er góð lausn fyrir hvort sem er verktakann og húsbyggjendan enda mjög einfalt í uppsetningu. Við framleiðum handriðin eftir máli og sendum með uppsetningarleiðbeiningar með hverju verki.
- SlimlineKE 100 Gler er fest í álskúffu toppfest.
- SlimlineKE 115 Gler er fest í álskúffu hliðarfest með áfellu.
- EasyLine: Gler er fest í álskúffu, hliðarfest.
- Fixpoints: Gler er fest í punktfestingar, hliðarfest.
Við lagerfærum algengustu gerðir Slimline prófíla og handlista sem henta fyrir flest venjuleg verkefni og því er afgreiðslutíminn stuttur, en í stærri verkefni með lengri afgreiðslutíma og sérkröfur getum við boðið hvaða prófíla sem er úr bæklingi, jafnvel prófíla með vottun upp í allt að 6 kN/m!
3D reiknivélin
Í nýju reiknivélinn okkar getur þú útfært glerhandrið eftir þínum málum, breytt tegundum, gleri, hæð og festingarútfærslum svo eitthvað sé nefnt og fengið útreikninginn sendann í tölvupósti eða pantað handriðið beint í reiknivélinni, sé þess óskað
Við yfirförum málin og öll smáatriði til að truggja að allt passi.
Sérfræðiráðgjöf
Við ráðleggjum um efnisval og hvernig standa skal að uppmælingu, ásamt að veita tæknilega ráðgjöf er varð undirlag og annað sem þarfnast til að útfæra verkefnið.
Heildar lausnir
Handrið frá okkur koma tilbúin með skrúfum og öllum festingum. Það eina sem vantar í pakkann er iðnaðarmaðurinn en við bendum á færa uppsetningarmenn sé þess óskað