Glerhandrið

Slimline – glerhandrið

Stílhrein glerhandrið fyrir svalir, svalaganga, stiga  og palla.  Glerið er eingöngu fest í álskúffu og veitir því óskert útsýni, án pósta. Einföld hönnun og  100% öryggi einkennir Slimline handriða kerfin okkar. Handriðin eru tilsniðin eftir máli og henta vel fyrir þá sem vilja setja upp sjálfir. Allar festingar og skrúfur fylgja og heimsending á höfuðborgarsvæðinu er innifalin í verði. Sendum um allt land. 

Fusion line svalahandrið

Hin nýja Fusion handriðalína sameinar nútímalega hönnun, fjölbreytta útfærslumöguleika og  öryggi.
Kostir kerfisins er að glerið er fest í álstólpa eða glerlista án sýnilegra festinga ásamt því að vera nánast viðhaldsfrítt. Fjölmargir útfærslumöguleikar með eða án handlista. Einfalt í uppsetningu.

F50 klassískt glerhandrið

F50 ál er klassískt handriðakerfi úr sérstyrktum álstólpum og gleri þar sem glerið er fest í hefðbundnar glerklemmur sem skrúfaðar eru á stólpa.  Kerfið lítur út eins og ryðfrítt stál en er framleitt úr seltuþolnu áli og með rafpólerað yfirborð og því er kerfið nánast viðhaldsfrítt, því hvorki fellur á álið og ekki er möguleiki á ryði.

Glerhandrið á stiga

Glerhandrið á stigatröppur eru flóknari en venjuleg bein svalahandrið og því ekki hægt að reikna út þann kostnað beint í reiknivél okkar.  Við getum auðveldlega útvegað þessa gerð, fáum við réttar upplýsingar.  Óskir þú verðtilboðs í stigahandrið er hægt að hafa samband, senda teikningar eða myndir af aðstæðum. Hér að neðan er hægt að nálgast einfaldar leiðbeiningar um hvað skal skoða þegar mælt er fyrir stigahandriði.

svalahandrið

Álhandrið

Sterkbyggð ál-rimlahandrið, góður kostur fyrir byggingaraðila sem þurfa marga metra á hagstæðu verði.
Handriðin  fást bæði topp og hliðarfest og
koma í tilbúnum 1 til 4 metra einingum á bygginarstaðinn klár til uppsetningar. Þessi gerð hentar vel bygginaraðilum sem vilja setja upp sjálfir hratt og örugglega. Möguleiki á sérframleiddum einingum ásamt burðarþolsútreikningum í hvert verkefni.

svalahandrið

Svalagangar -glerkápur

Í verkmiðju okkar framleiðum við svalaganga eftir máli úr gluggaprófílakerfinu EW50 frá Aluminco. Hér er um að ræða fullkomið kerfi sem ætlað er til lokunar á stærri byggingum hvort sem er heilglerjaða einangraða glerkápu eða sem einfalda opna 70/30 svalaganga. Allt gler í svalagöngum frá okkur er bæði hert og samlímt öryggisgler og fæst í glært, í lituðu og með prenti allt eftir hönnun hverju sinni. Burðarprófilar í EW50 kerfinu fást frá 50mm upp í mjög öfluga 300mm prófíla og henta því vel í íslenskt verðurfar. 

svalahandrið

Hert öryggisgler

ProRailing býður sérunnið  gler í hverskonar byggingaframkvæmdir ss. handrið, glerveggi, svalaskjól og svalaganga. Ýmsar útfærslur og litir eru í boði á hertu gleri td. glært, extra glært, brons litað, grátt eða matt bæði fyrir handrið innanhúss sem og utanhúss. Margar gerði af fólíu og digital kermísku prenti má fá í mismunandi litum allt eftir hönnun og óskum.

svalahandrið

Glerfestingar

Í verksmiðju okkar í Árósum framleiðum við öll okkar glerhandrið eigum við á lager mikið magn álskúffa, glerprófíla og glerfestinga. Ásamt því að framleiða handrið eftir máli, seljum við einnig glerfestingar í lausu og bjóðum mikið úrval punktfestinga í mörgum stærðum og lengdum ásamt handlistfestingum. Því getum við boðið festingar með stuttum afgreiðslufresti jafnvel  niðrí 2-3 daga eftir gerð.

Vantar uppsetningu ?

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tóm!Til baka