Svalalokanir
Svalalokanir
ProRailing býður vandaðar svalalokanir fyrir allar gerðir svala og svalaganga. Við bjóðum nokkrar gerðir og seljum svalalokanir frá Malmerk Klaasium ásamt því að framleiða okkar eigin svalalokanir bæði felli og rennikerfi. Stærð verkefnis, staðsetning, útfærsla og vindálagskröfur ofl. spilar inn, og eru fjölmargar útfærslur í boði. Glerlokanir frá okkur eru vottaðar og framleiddar eftir ýtrustu álgskröfum, gler CE merkt samkvæmt reglugerð og samræmdum evrópskum stöðlum EN12150-2:2004 (Gler í byggingar – Hitahert öryggisgler úr natríumkalksilíkati EN14449:2005). Glerþykkir og val á prófílum og festingar er útreiknað eftir stærð og álagskröfum á hverjum stað.
Hér í reiknivél geturðu reiknað leiðbeinandi efnisverð á svalalokun miðað við hefðbundnar forsendur
Verð á efninu miðast við hefðbundnar forsendur og afhendingu á höfuðborgarsvæðinu. Innifalið í efnisverði eru allar tilheyrandi festingar, skrúfur osfr.
Óskir þú að panta svalalokun og vilt mæla og setja upp sjálfur útvegum við uppsetningarleiðbeiningar sem sýna hvernig svalalokun er uppsett frá A til Ö. Einnig er sýnt hvernig er mælt og hvað ber að varast.
Óskir þú eftir uppmælingu og jafnvel uppsetningu á svalalokuninni getur maður á okkar vegum komið á staðinn til skoðunar og uppmælingar á svölum. Eftir skoðun og uppmælingu er gefið verðtilboð þar sem uppsetning er innifalin og sé einhverra breytinga þörf eða nausynlegt að útfæra sérstakar lausnir sendum við uppfært fast verðtilboð þannig að allur kostnaður komi fram áður en pöntun fer af stað. Ef um fleiri aðila er að ræða í sömu eign bjóðum við magnafslátt á hverja íbúð. Möguleiki er á endurgreiðslu á hluta VSK af vinnu á uppsetningarstaðnum en það er alltaf háð reglum stjórnvalda um endurgreiðslur hverju sinni.
Allar svalalokanir eru með 5 ára verksmiðjuábyrgð
Svalalokun frá okkur draga úr hljóðmengun og hitatapi og veita því einnig vörn gegn veðri, kulda og hávaða. Allt gler er hert CE merkt og er glerþykktir, prófílar og festingar útreiknað eftir stærð og álagskröfum á hverjum stað.
Þú munt ekki sjá eftir þeirri ákvörðun að loka svolunum með gleri því þú færð auka fermetra í eignina sem þú munt njóta um ókomin ár td. fyrir líkamræktartæki, sötra morgunkaffið eða að horfa á norðurljósin.
Arkitektar og byggingaraðilar
Við vinnum með hönnuðum og fyrirtækjum. Hér er hægt að hlaða niður BIM skrám fyrir bæði AutoCad Revit og ArchiCad og nota í hönnun á byggingum með svalalokunum.
Allar svalalokanir eru með 5 ára verksmiðjuábyrgð